miðvikudagur, ágúst 11

loftkæling?

Vitiði um góða loftkælingu í hús á góðu verði???

Ef svo er endilega láta mig vita, er að kafna hérna inni.... sérstaklega á nóttunni, er farin að sofa bara með sængurverið ofan á mér, búin að stilla viftunni á stól við hliðina á rúminu til þess að fá svona smá kaldann gust á mig.. já þetta eru helsu ókostirnir við hitann... en hann er ljúfur að öðru leiti - umm......

föstudagur, ágúst 6

Blessuð blíðan :)

Jæja nú er sko sumarið hérna hjá okkur í DK..... alveg ferlega ljúft, sól og steikjandi hiti :)

Helsu fréttirna hjá mér eru þær að hún Bíba mín er búin að eignast strák, ég bíð spennt eftir myndum af prinsinum, en hann er örugglega algjör dúlla.

Ég er svo búin að fá vaktaplanið fyrir september, líst bara vel á það, frí aðra hverja helgi og yfirleitt bara að vinna annan daginn - eða næturvakt, þær helgar sem ég er að vinna, vona bara að það verði svona áfram. Annars finnst mér þetta alltaf jafn spennó, búin að liggja yfir námsmöppunni og svona ;)

Jammm.... annars er frekar lítill blogg andi yfir mér núna - þannig að bara bæjó í bili.... verður vonandi meira líf í mér næst