þriðjudagur, júlí 24

Ljósukaffi

Ljósukaffi

Á síðustu öld (alla vegna á fyrri hlutanum og fram undir 1970/1980) áttu flestar konur börnin sín heima bæði á Íslandi og í Danmörku. Í Danmörkinni (veit ekki alveg með Ísland) var hápunktur fæðingarinnar Ljósmæðrakaffið (jordemoderkaffet), það er að segja kaffið sem boðið var upp á að lokinni fæðingu, ljósmóðurinni til heiðurs. Þetta voru ein helstu hlunnindi starfsins á þessum tíma, sem þá fól í sér oft margra tíma yfirsetu og miklar vökur.

Núna er minni fæðingu lokið – fæðingu minni sem ljósmóður. Þess vegna langar mig til að bjóða þér/ykkur fjölskyldunni í kaffi til mín. Þar sem vegalengdirnar eru langar og ekki margir sem geta skroppið til mín hingað til Álaborgar, ætla ég að skella mér til ykkar á Klakann í smá skrepputúr á milli vakta.



Kaffið verður haldið í safnaðarheimilinnu á Hellu föstudaginn 27.júlí milli klukkan 15 og 18.

Vonast ég til þess að sjá sem flesta í kaffiboðinu mínu, bæði til að fagna áfanganum með mér, til þess að minnast 30 afmælisins míns sem var á dögunum og líka bara svo ég fái að sjá ykkur og gleymi ekki hvernig vinir og ættingjar nú líta út!!!!

Þið megið gjarnan láta mig vita hvort þið komist – ég verð á íslandi 23. – 30. júlí og verð með símanúmerið 896 5504. Ef ekki næst í mig megið þið endilega reyna að hringja í hann Bjarna minn í síma 844 0119.

Kveðja Gréta Rún Árnadóttir Jordemoder (eða ljósmóðir)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með áfangann.
Kveðja frá Köben.
Auður Erla og co.

Unknown sagði...

Hæhæ Gréta
Takk fyrir innlitið á síðuna mína. Til hamingju með þína útskrift :-D
Skrollaði aðeins niður á síðunni þinni og sá að þú ert að fara vinna á sjúkrahúsinu í Hjörring? Ég er einmitt að bíða eftir svari frá þeim, langar svo á barnadeildina þar. Sjáumst vonandi í kórnum í haust, kv. SoffíaB